Val í 5.- 6. bekk

Tímabil 3: 30. nóvember - 29.  janúar

Nemendur í 5.-6. bekk velja fimm sinnum yfir veturinn einhverja valgrein sem tengist áhugasviði.
Ásamt þessum valgreinum verða allir nemendur í hefðbundnum list- og verkgreinum.


Val

Er kennt á miðvikudögum kl. 12:30-13:50


01 Heimsreisan

Tímafjöldi: 1x2 kennslustundir í viku í 7 vikur
Kennari:  Andri Már Þorsteinsson
Hámarksfjöldi: 16 nemendur

Í valgreininni ferðast nemendur um heiminn í leiknum OpenGuessr og reyna að finna út hvar götumyndir voru teknar. Í hverri viku er nýtt land í brennidepli og nemendur læra að lesa í vísbendingar eins og skilti, tungumál, landslag og byggingar. Unnið er í pörum og hver tími endar á keppni. Áhersla er lögð á gleði, samvinnu og að allir geti tekið þátt á sínum forsendum.

Hæfniviðmið:

  • að nemendur beiti athygli og rökhugsun til að draga ályktanir út frá vísbendingum í umhverfinu.
  • að nemendur þekki legu landa á heimskorti og geti staðsett þau.
  • að nemendur kynnist fjölbreyttum menningarheimum, tungumálum, landslagi og lifnaðarháttum.
  • að nemendur noti snjalltæki á ábyrgan og skapandi hátt í námi.
  • að nemendur æfist í samvinnu, tillitssemi og að skiptast á hlutverkum í paravinnu.
  • að nemendur sýni íþróttamannslega framkomu í keppni, bæði í sigri og tapi.

Námsmat:

Leiðsagnarmat og símat þar sem námsmarkmið eru metin ásamt virkni, frumkvæði, samvinnu og framkomu í tímum. Einnig er horft til vísbendingablaða nemenda og framfara hvers og eins yfir tímabilið.

 


02 Hnotubrjótar

Tímafjöldi: 1x2 kennslustundir í viku í 7 vikur
Kennari: Úlfur Karlsson
Hámarksfjöldi: 14 nemendur

Við lærum um hönnun, myndsköpun og þrívíða vinnu með því að búa til hnetubrjóta úr einföldum endurnýttum efniviði. Nemendur vinna að því að skapa jólalega hnotubrjóta-veröld. 

Verkefnið skiptist í tvo hluta:
A. Litlir hnotubrjótar – einstaklingsverkefni
Hver nemandi hannar sinn eigin hnetubrjót. Nemendur geta valið mismunandi liti, búninga, hatta, hárgreiðslur og svipbrigði.
B. Einn stór sameiginlegur hnetubrjótur
Hér vinna nemendur saman að því að búa til stóran hnetubrjót úr stórum pappahólki.

Stóri hnotubrjóturinn gæti orðið sameiginlegt jólaverkefni sem verður til sýnis í skólanum yfir aðventuna.

Hæfniviðmið

  • Unnið með þrívíð form og byggt upp einfaldar fígúrur úr endurnýttum efniviði.
  • Nýtt hugmyndaflug og sköpunargáfu við hönnun eigin hnetubrjóta.
  • Kynnst mismunandi efnum, áferðum og aðferðum við myndsköpun.
  • Unnið sjálfstætt og í samvinnu við aðra.
  • Tileinkað sér að nýta endurnýtanlegan efnivið í skapandi verkefnum.
  • Sýnt frumkvæði við lausnaleit og útfærslu eigin hugmynda.
  • Gengið vel um efni og áhöld og sýnt ábyrg vinnubrögð.

Námsmat

Símat og leiðsagnarmat þar sem hæfniviðmið eru metin. Einnig er horft til vinnusemi, frumkvæðis, vandvirkni, umgengni og ábyrgðar.

 


03 Bakstur

Tímafjöldi: 1x2 kennslustundir í viku í 7 vikur
Kennari: Elín Ása Magnúsdóttir
Hámarksfjöldi: 12 nemendur

Hér verður lögð áhersla á bakstur.

Hvernig við förum með hráefnið sem við erum að nota, umgengni í eldhúsi, frágangur og þrif. 

Námsmarkmið:

  • Sýni samnemendum og kennara virðingu og góða framkomu
  • Fylgja fyrirmælum og fara eftir uppskriftum
  • Tileinki sér góð vinnubrögð og hreinlæti
  • Þjálfast í samvinnu sem og sjálfstæðum vinnubrögðum
  • Auki áhuga sinn fyrir mismunandi bakstri.

Námsmat:

Leiðsagnarmat og símat þar sem hæfniviðmið eru metin ásamt vinnusemi, frumkvæði, umgengni og vandvirkni.

 


04 Leikir og spil

Tímafjöldi: 1x2 kennslustundir í viku í 7 vikur
Kennari: Magnús Hilmar Viktorsson
Hámarksfjöldi: 14 nemendur

Í þessu vali ætlum við að eiga skemmtilegar stundir saman með alls konar spilum og leikjum! Við prófum bæði nýja og gamla góða leiki, lærum nýjar reglur og rifjum upp leiki sem hafa verið vinsælir í gegnum tíðina.

Við spilum meðal annars borðspil, spilastokkaleiki og gamla leiki eins og eina krónu, þrjá hluti og margt fleira. Hér fá allir tækifæri til að prófa sig áfram, taka þátt, vinna saman og hafa gaman.

Hæfniviðmið:

  • Að nemendur geti unnið með öðrum og lagt sitt af mörkum í samstarfi sem tengist námi og félagsstarfi.
  • Að nemendur geri sér grein fyrir eigin hlutverki í samstarfi og lagt sitt af mörkum.
  • Að nemendur skilju mikilvægi jákvæðra samskipta.
  • Að nemendur þekki helstu leikreglur í leikjum, hóp- og einstaklingsíþróttum.
  • Að nemendur fari eftir leikreglum og sýni háttvísi í leik.

Námsmat:

Símat þar sem hæfniviðmið eru metin ásamt vinnusemi, frumkvæði og vandvirkni.


05 Jólaskraut og leir

Tímafjöldi: 1x2 kennslustundir í viku í 7 vikur
Kennari: Hildur Þorkelsdóttir
Hámarksfjöldi: 16 nemendur

Í desember gera nemendur fjölbreytt jólaskraut og í boði er að skreyta boli/peysur fyrir jólin.

í janúar kynnast nemendur leir sem ekki þarf að brenna og búa til kertastjaka, skálar og fleira.

Hæfniviðmið:

  • Að nemandi geti unnið eftir ferli og leyft sköpunargleðinni að ráða.
  • Getur unnið með hugmynd frá skissu að fullgerðum hlut.

Námsmat:

Leiðsagnarmat og símat þar sem hæfniviðmið eru metin ásamt vinnusemi, frumkvæði, umgengni og vandvirkni.


06 Borðtennis

Tímafjöldi: 1x2 kennslustundir í viku í 7 vikur
Kennari: Heiðar Pétur Halldórsson
Hámarksfjöldi: 14 nemendur

Farið verður yfir grunnatriðin og helstu reglur í borðtennis. Þegar við spilum borðtennis lærum við líka um hvernig á að bera okkur vel í leik, vera virk og skemmtileg í hóp. 

Borðtennis er frábær leið til að hreyfa sig, bæta færni, hraða og samhæfingu. 

Við munum læra grunnreglurnar og æfa okkur saman!“

Hæfniviðmið:

  • Að nemendur kynnist borðtennis  
  • Læri helstu grip á spaða  
  • Læri reglur í borðtennis  
  • Sýni sjálfstæði og taki þátt  

Námsmat

Þátttaka og virkni nemenda.  


07 Leikum saman

Tímafjöldi: 1x2 kennslustundir í viku í 7 vikur
Kennari: Guðný Lára Gunnarsdóttir
Hámarksfjöldi: 14 nemendur

Í smiðjunni vinnum við með leiklist á skapandi, skemmtilegan og fjölbreyttan hátt. Áhersla verður á leiklistarleiki, spuna, líkamstjáningu, rödd, persónusköpun og samvinnu. 

Nemendur fá að prófa sig áfram í ýmsum leikrænum æfingum þar sem þeir nota ímyndunaraflið, skapa persónur og aðstæður og læra að byggja áfram á hugmyndum annarra. Unnið verður bæði í pörum og litlum hópum og notast við einfaldar kveikjur, sögur, orð, myndir og aðstæður. 

Áherslan er fyrst og fremst á leikgleði, sköpunargleði, samvinnu og að öðlast meira öryggi í að tjá sig með líkama, rödd og leik.

Í lok smiðjunnar vinna nemendur stutt leikræn verkefni eða spuna þar sem þeir nýta það sem þeir hafa lært.

Engin reynsla nauðsynleg – bara áhugi á leiklist og löngun til að prófa!

Hæfniviðmið:

  • Geti nýtt sér hugmyndir jafningja og lagt fram sínar eigin í leikrænu ferli.
  • Geti skapað einfalda leikpersónu og tjáð hana með rödd, hreyfingu og svipbrigðum.
  • Geti unnið með öðrum að einföldum leiklistarverkefnum og tekið þátt í stuttum spuna.

Námsmat:

Leiðsagnarmat og símat þar sem hæfniviðmið eru metin ásamt virkni og þátttöku nemenda.


Ef þið hafið einhverjar athugasemdir eða spurningar þá vinsamlegast sendið línu á leifur@stekkjaskoli.is