Starfsdagur er í skólanum mánudaginn 2. nóvember og því frí hjá nemendum.
Nemenda- og foreldraviðtöl hefjast mánudaginn 2. nóvember og halda áfram þriðjudaginn 3. nóvember.
Vöfflusala nemendafélagsins er 2.-3. nóvember.
Salan fer fram á eftirfarandi tímum:
- 2. nóvember kl. 12:30-15:15
- 3. nóvember kl. 8:15-12:00
Kaup á vöfflum er stuðningur við nemendafélag Stekkjaskóla
Óskilamunir
Minnum nemendur og foreldra að kíkja á óskilamuni sem verða á göngum skólans.
Stekkjaskóli er aðgengilegur á Facebook og Instagram. Finnið síðurnar með því að slá inn Stekkjaskóla í leit. Síðurnar eru nýttar til upplýsingagjafar og hvetjum við alla foreldra til að fylgja okkur þar.
Bestu kveðjur, starfsfólk Stekkjaskóla
