Yrkjuplöntur gróðursettar

Nemendur í 6.bekk gróðursettu í dag birkiplöntur á útvistarsvæði í grennd við Stekkjaskóla. Um er að ræða árlegt verkefni hjá 6.bekk í Stekkjaskóla sem unnið er í samstarfi Skógræktarfélags Íslands – Yrkjusjóð æskunnar og umhverfisdeildar Árborgar.
Svæðið sem um ræðir afmarkast af Lækjarbakka í norður, Fossvegi í austur og Kjarrmóa í vestur og ber nafnið Flóðhólsflóð í Örnefnasjá Náttúrufræðistofnunar
Tilvalið að koma þar við í göngutúr með fjölskyldunni
Um Yrkju

Yrkja – sjóður æskunnar til ræktunar landsins er sjóður sem úthlutar trjáplöntum til grunnskólabarna. Sjóðurinn hefur eigin stjórn, en Skógræktarfélag Íslands hefur umsjón með honum. Sjá nánar hér.