Val í 7.- 8. bekk

Tímabil 2: 12. október - 27. nóvember

 Val A

Er kennt á mánudögum og fimmtudögum kl. 12:30-13:50


01 Heimilisfræði

Tímafjöldi: 2x2 kennslustundir í viku í 7 vikur
Kennari: Hilmar Guðlaugsson
Hámarksfjöldi: 14 nemendur

Heimilisfræði er ekki valgrein í A vali. Allir fara í heimilisfræði einu sinni í vetur.

Í þessu valfagi er lögð áhersla á eldamennsku og bakstur í bland.

Farið verður yfir meðhöndlun hráefnis og matvæla, umgengni og þrif á helstu áhöldum í eldhúsinu auk almenns frágangs. Auk þess verur farið yfir tengsl næringar og heilsu ásamt ýmsum þáttum tengdum heimilishaldi.

Í vetur munu nemendur nota vefinn til að finna uppskriftir. Velja sér eitthvað til að elda eða baka og taka sig svo upp. Hluti af námsmatinu í heimilisfræði er myndbandið sem nemendur skila af sér.

Hæfniviðmið

  • Kynnist helsta handbragði í matreiðslu og bakstri.
  • Matreitt einfalda rétti eftir uppskrift og unnið sjálfstætt.
  • Farið eftir leiðbeiningum um hreinlæti og þrif tengdu heimilishaldi.
  • Gert sér grein fyrir helstu kostnaðarliðum við heimilishald og sé meðvitaður um neytendavernd.

Námsmat

Símat og leiðsagnarmat þar sem hæfniviðmið eru metin ásamt vinnusemi, frumkvæði, vandvirkni, umgengni og ábyrgð eru metin.

 


02 Náttbuxur

Tímafjöldi: 2x2 kennslustundir í viku í 7 vikur
Kennari: Hildur Þorkelsdóttir
Hámarksfjöldi: 14 nemendur

Nemendur kynnast grunnaðferðum í vélsaum og sauma náttbuxur úr flóneli.  Lögð er áhersla á að nemendur læri að sníða eftir sniði og gera buxur frá grunni.

Hæfniviðmið

  • Að nemendur geti lagt saman efnisbrúnir og títiprjónað.
  • Að nemendur geti saumað með fót við brún.
  • Að nemendur geti unnið eftir ferli og leyft sköpunargleðinni að ráða.
  • Að nemendur kunni að sauma zikk zakk.

Námsmat

Símat og leiðsagnarmat þar sem hæfniviðmið eru metin ásamt þátttöku í tímum. EInnig er horft til vinnusemi, frumkvæðis, vandvirkni, umgengni og ábyrgðar.

 


03 Skapandi tilraunastofa

Tímafjöldi: 2x2 kennslustundir í viku í 7 vikur
Kennari: Úlfur Karlsson og Magnús Hilmar Viktorsson
Hámarksfjöldi: 14 nemendur

Markmiðið er að nemendur fái tækifæri til að skapa, gera tilraunir, prófa nýjar hugmyndir og læra í gegnum verklega vinnu. Ekki er aðeins lögð áhersla á lokaútkomuna heldur einnig ferlið, tilraunirnar og það að nemendur finni sínar eigin leiðir til að útfæra verkefnin.

Hæfniviðmið:

Að nemendur geti...

  • notað mismunandi efni og verkfæri á öruggan og skapandi hátt.
  • gert tilraunir með liti, form og áferð og skoðað hvernig mismunandi efni bregðast við hvert öðru.
  • blandað liti og notað litasamsetningar á meðvitaðan hátt í eigin verkum.
  • unnið eftir einföldum leiðbeiningum og uppskriftum, til dæmis við slímgerð.
  • breytt og þróað eigin hugmyndir í gegnum skapandi ferli.
  • prófað mismunandi aðferðir og valið þær sem henta eigin hugmynd.
  • sýnt frumkvæði og sjálfstæði í verklegri vinnu.
  • nýtt óhefðbundin og endurnýtanleg efni í eigin myndsköpun og hönnun.
  • útskýrt eigin hugmyndir og val á efnum, litum og aðferðum.
  • skoðað og rætt eigin verk og annarra á uppbyggilegan hátt.
  • unnið með öðrum og deilt hugmyndum og aðferðum.
  • sýnt þrautseigju við skapandi verkefni og gert sér grein fyrir að tilraunir og mistök geta verið hluti af sköpunarferlinu.

Námsmat:

Námsmat í áfanganum er fyrst og fremst leiðbeinandi og byggist á vinnuferli nemenda, þátttöku og sköpun. Áhersla er lögð á að nemendur prófi sig áfram, sýni frumkvæði og þrói eigin hugmyndir.

 


04 Smíðum bíl

Tímafjöldi: 2x2 kennslustundir í viku í 7 vikur
Kennari: Þuríður Ingvarsdóttir
Hámarksfjöldi: 12 nemendur

Nemendur smíða lítinn leikfangabíl. Ef tími vinnst til vörum við í fablab og tengjum ledljós við bílinn.

Hæfniviðmið:

  • Að nemendur noti ólíkan efnivið, timbur, plexigler o.fl.
  • Að  nemendur vinni hugmynd frá skyssu að tilbúnum hlut.
  • Að nemendur læri að nota verkfæri við hæfi, beita þeim rétt og rétta umhirðu þeirra.

Námsmat

Leiðsagnarmat og símat.

 


05 Íþróttaval

Tímafjöldi: 2x2 kennslustundir í viku í 7 vikur
Kennari: Bára Sif Gunnlaugsdóttir og Heiðar Pétur Halldórsson
Hámarksfjöldi: 14 nemendur

Í áfanganum fá nemendur tækifæri til að kynnast fjölbreyttum íþróttum og hreyfingu. Við munum fara til dæmis í borðtennis, badminton og aðrar íþróttir sem hægt er að stunda í fjölnotasal skólans. Einnig munum við fara í körfubolta, fótbolta og aðrar íþróttir úti til að nýta aðstöðu og svæði í nærumhverfi skólans þegar veður leyfir. Áhersla verður lögð á hreyfingu, samvinnu og að nemendur taki virkan þátt í tímunum

Markmið

  • Tekið þátt í fjölbreyttum íþróttum og hreyfingu og beitt grunnfærni við ólíkar aðstæður.
  • Unnið með öðrum, farið eftir reglum og sýnt sanngirni og tillitssemi.
  • Metið eigin þátttöku og framfarir og áttað sig á mikilvægi hreyfingar fyrir heilsu og vellíðan.

Námsmat

Þátttaka og virkni nemenda.  

 


06 Vísindi í verki

Tímafjöldi: 2x2 kennslustundir í viku í 7 vikur
Kennari: Elín Ása Magnúsdóttir
Hámarksfjöldi: 14 nemendur

Í þessu valfagi verður lögð áhersla á verklegar tilraunir, rannsóknir og skráningu niðurstaðna. 

Við leitum vísbendinga í náttúrunni og rannsökum meðal annars laufblöð og mold. Við hönnum og byggjum brýr sem þurfa að standast krefjandi prófanir, þróum leiðir til að verja egg í falltilraunum og framkvæmum fjölbreyttar tilraunir þar sem við skoðum efnahvörf og eiginleika ólíkra efna. 

Áhersla verður lögð á að prófa, rannsaka, gera mistök, læra af þeim og prófa aftur

Markmið

Að nemandi geti...

  • framkvæmt einfaldar vísindalegar rannsóknir og tilraunir eftir leiðbeiningum.
  • sett fram tilgátu, prófað hana og skráð niðurstöður á skipulegan hátt.
  • notað mælingar, athuganir og gögn til að draga ályktanir.
  • útskýrt einföld vísindaleg hugtök 
  • unnið sjálfstætt og í samvinnu við aðra, sýnt frumkvæði og tekið ábyrgð á eigin vinnu.
  • skráð og miðlað niðurstöðum á skýran og skipulegan hátt.
  • metið eigin vinnu og lærdóm og áttað sig á því hvað gekk vel og hvað mætti bæta

Námsmat

Leiðsagnarmat og símat þar sem námsmarkmið eru metin ásamt virkni, frumkvæði og framkomu í tímum.

 


Val B

Er kennt á þriðjudögum kl. 12:30-13:50

01 Tölvuleikjahönnun

Tímafjöldi: 1x2 kennslustundir í viku í 7 vikur
Kennari: Bryndís Kjartansdóttir
Hámarksfjöldi: 14 nemendur

Í þessu vali kynnast nemendur því hvernig forrit og leikir verða til. Við ætlum að læra einfaldar skipanir til þess að hanna og forrita einfalda tölvuleiki í tvívídd. Forritunarmálið sem við vinnum með heitir Scratch sem er hugbúnaður gerður fyrir börn. Hér verður sköpunargleði og útsjónarsemi í aðalhlutverki.

Hæfniviðmið:

  • Þekkja einfaldar skipanir í forritun
  • Þekkja nokkur grunnhugtök í tölvunarfræði
  • Þjálfa rökhugsun og útsjónarsemi
  • Geta hannað einfaldan leik

Námsmat:

Símat þar sem hæfniviðmið eru metin ásamt vinnusemi, frumkvæði og vandvirkni.


02 Límmiðar og fatavinyll

Tímafjöldi: 1x2 kennslustundir í viku í 7 vikur
Kennari: Hildur Þorkelsdóttir
Hámarksfjöldi: 14 nemendur

Nemendur kynnast eiginleikum vinyls sem við notum til að setja texta/myndir á efni.  Lærum hvernig við getum notað vinyl til að búa til límmiða til skrauts sem og til að merkja hluti.

Val verður um verkefni t.d. púðar, litlar töskur eða pokar.  Allir þurfa að gera eitt verkefni þar sem notaður er strauvinyll og eitt verkefni það sem notaður er límmiðavinyll.

Nemendur geta komið með fatnað að heiman og sett strauvinyl á fatnaðinn til skrauts.

Hæfniviðmið:

  • Þekkir eiginleika vinyls í textíl og hvaða möguleika það gefur.
  • Getur unnið með hugmynd frá skissu að fullgerðum hlut.

Námsmat:

Leiðsagnarmat og símat þar sem hæfniviðmið eru metin ásamt vinnusemi, frumkvæði, umgengni og vandvirkni.


03 Leikræn tjáning og spuni

Tímafjöldi: 1x2 kennslustundir í viku í 7 vikur
Kennari: Guðný Lára Gunnarsdóttir
Hámarksfjöldi: 14 nemendur

Í smiðjunni vinnum við með leikræna tjáningu á skapandi og skemmtilegan hátt. Áhersla verður á spuna, líkamstjáningu, rödd, persónusköpun, framkomu og samvinnu.

Við förum í fjölbreytta leiklistarleiki og æfingar þar sem nemendur fá að prófa sig áfram, bregðast við í augnablikinu og byggja áfram á sínum eigin hugmyndum og annarra. Unnið verður bæði í pörum og litlum hópum og notast við einfaldar kveikjur, texta, aðstæður og hugmyndir nemenda sjálfra.

Áherslan er fyrst og fremst á sköpunargleði, samvinnu, tjáningu og að öðlast meira öryggi í leik og framkomu. 

Í lok smiðjunnar vinna nemendur stutt leikræn verkefni eða spuna þar sem þeir nýta það sem þeir hafa lært.

Hæfniviðmið:

  • Geti nýtt sér hugmyndir jafningja og lagt fram sínar eigin í leikrænu ferli og við undirbúning og sköpun leikþáttar. 
  • Geti skapað skýra leikpersónu og viðhaldið henni í stuttum leikþætti með viðeigandi radd- og líkamsbeitingu. 
  • Geti unnið í hópi að fjölbreyttum leiklistarverkefnum, lagt fram sínar eigin hugmyndir og nýtt hugmyndir annarra við undirbúning og sköpun leikþátta. 

Námsmat:

Leiðsagnarmat, símat og sjálfsmat þar sem metin eru þátttaka, virkni og samvinna nemenda.


04 Þrívídd og litaskynjun

Tímafjöldi: 1x2 kennslustundir í viku í 7 vikur
Kennari: Úlfur Karlsson
Hámarksfjöldi: 14 nemendur

Hefurðu áhuga á litum, formum og því hvernig við sjáum hluti? Í Þrívídd og litskynjun fá nemendur að kanna hvernig litir, form, ljós og rými hafa áhrif á það sem við sjáum.

Nemendur vinna með fjölbreytt verkefni í tví- og þrívídd, meðal annars með pappír, pappa, leir og öðrum einföldum efnum. Unnið verður með form, byggingu, sjónhverfingar, litablöndun og ólíkar leiðir til að skapa tilfinningu fyrir dýpt og rými.

Áhersla er á að prófa sig áfram, skoða hvernig hlutir virka í rými og þróa eigin hugmyndir í gegnum verklega vinnu.

Hæfniviðmið:

  • Vinna með form, liti, rými og áferð í eigin verkum, geta nýtt ólík efni og aðferðir til að skapa verk í tví- og þrívídd.
  • Kanna hvernig litir, ljós og form hafa áhrif á sjónræn áhrif.
  • Getua skapað tilfinningu fyrir dýpt og rými í myndverkum og þrívíddarverkum.
  • Þróa eigin hugmyndir og útfært þær á skapandi hátt.
  • Geta rætt um eigin verk, aðferðir og vinnuferli.
  • Þróar eigin hugmynd og útfært hana í skapandi myndverki.

Námsmat:

Leiðsagnarmat, símat og sjálfsmat þar sem lögð er áhersla á þátttöku, hugmyndavinnu, tilraunir, úrvinnslu og þróun verkefna.


Ef þið hafið einhverjar athugasemdir eða spurningar þá vinsamlegast sendið línu á leifur@stekkjaskoli.is