Val í 5.- 6. bekk

Tímabil 2: 12. október - 27. nóvember

Nemendur í 5.-6. bekk velja fimm sinnum yfir veturinn einhverja valgrein sem tengist áhugasviði.
Ásamt þessum valgreinum verða allir nemendur í hefðbundnum list- og verkgreinum.


Val

Er kennt á miðvikudögum kl. 12:30-13:50


01 Krakka Kviss

Tímafjöldi: 1x2 kennslustundir í viku í 7 vikur
Kennari:  Andri Már Þorsteinsson
Hámarksfjöldi: 16 nemendur

Í valgreininni semja nemendur sínar eigin spurningar fyrir spurningakeppni í anda Kviss. Í hverri viku er nýtt þema, til dæmis íþróttir, tónlist, landafræði, dýr, kvikmyndir eða saga. Nemendur vinna saman í litlum hópum og nýta snjalltæki (5. bekkur notar iPad og 6. bekkur fartölvur) til að afla upplýsinga á netinu, meta hvort þær séu áreiðanlegar og búa til skýrar og skemmtilegar spurningar með réttum svörum. Í lok hvers tíma er haldin spurningakeppni þar sem hóparnir spreyta sig á spurningum hver annars. Áhersla er lögð á gleði og samvinnu. 

Hæfniviðmið:

  • að nemendur afli upplýsinga á netinu á markvissan hátt og leggi mat á áreiðanleika heimilda.
  • að nemendur semji skýrar og vel orðaðar spurningar og gangi úr skugga um að svörin séu rétt.
  • að nemendur noti snjalltæki á ábyrgan og skapandi hátt í námi.
  • að nemendur æfist í samvinnu, tillitssemi og að skiptast á hlutverkum í hópavinnu.
  • að nemendur sýni íþróttamannslega framkomu í keppni, bæði í sigri og tapi.
  • að nemendur auki almenna þekkingu sína á fjölbreyttum sviðum.

Námsmat:

Leiðsagnarmat og símat þar sem námsmarkmið eru metin ásamt virkni, frumkvæði, samvinnu og framkomu í tímum. Einnig er horft til gæða spurninganna, þar á meðal skýrleika þeirra og þess hvort svörin séu rétt og vel rökstudd.

 


02 Minecraft

Tímafjöldi: 1x2 kennslustundir í viku í 7 vikur
Kennari: Magnús Hilmar VIktorsson
Hámarksfjöldi: 12 nemendur

Minecraft er frábær tölvuleikur sem ýtir undir skapandi hugsun og samvinnu. Í þessari valgrein spilum við Minecraft saman og leysum ýmis verkefni. Nemendur fá tækifæri til að nýta sköpunarkrafta sína saman.

Ég hvet þau ykkar sem ekki hafa valið Minecraft áður að prófa. Það þarf enginn að hafa áhyggjur af því að kunna ekki nóg eða hafa ekki spilað leikinn.

Hæfniviðmið

  • Vinna með öðrum og lagt sitt af mörkum í samstarfi við ýmis verkefni.
  • Lært af mistökum og geta nýtt það í að betrumbæta vinnu.
  • Nota ýmiskonar miðla við nýsköpun, þróun, framsetningu upplýsinga og hugmynda.
  • Tekið leiðsögn og uppbyggilegri gagnrýni á jákvæðan hátt.

Námsmat

Símat og leiðsagnarmat þar sem hæfniviðmið eru metin. Einnig er horft til vinnusemi, frumkvæðis, vandvirkni, umgengni og ábyrgðar.

 


03 Bakstur

Tímafjöldi: 1x2 kennslustundir í viku í 7 vikur
Kennari: Elín Ása Magnúsdóttir
Hámarksfjöldi: 12 nemendur

Hér verður lögð áhersla á bakstur.

Hvernig við förum með hráefnið sem við erum að nota, umgengni í eldhúsi, frágangur og þrif. 

Námsmarkmið:

  • Sýni samnemendum og kennara virðingu og góða framkomu
  • Fylgja fyrirmælum og fara eftir uppskriftum
  • Tileinki sér góð vinnubrögð og hreinlæti
  • Þjálfast í samvinnu sem og sjálfstæðum vinnubrögðum
  • Auki áhuga sinn fyrir mismunandi bakstri.

Námsmat:

Leiðsagnarmat og símat þar sem hæfniviðmið eru metin ásamt vinnusemi, frumkvæði, umgengni og vandvirkni.

 


04 Skapandi tilraunastofa

Tímafjöldi: 1x2 kennslustundir í viku í 7 vikur
Kennari: Úlfur Karlsson
Hámarksfjöldi: 14 nemendur

Markmiðið er að nemendur fái tækifæri til að skapa, gera tilraunir, prófa nýjar hugmyndir og læra í gegnum verklega vinnu. Ekki er aðeins lögð áhersla á lokaútkomuna heldur einnig ferlið, tilraunirnar og það að nemendur finni sínar eigin leiðir til að útfæra verkefnin.

Markmið:

Að nemendur geti...

  • notað mismunandi efni og verkfæri á öruggan og skapandi hátt.
  • gert tilraunir með liti, form og áferð og skoðað hvernig mismunandi efni bregðast við hvert öðru.
  • blandað liti og notað litasamsetningar á meðvitaðan hátt í eigin verkum.
  • unnið eftir einföldum leiðbeiningum og uppskriftum, til dæmis við slímgerð.
  • breytt og þróað eigin hugmyndir í gegnum skapandi ferli.
  • prófað mismunandi aðferðir og valið þær sem henta eigin hugmynd.
  • sýnt frumkvæði og sjálfstæði í verklegri vinnu.
  • nýtt óhefðbundin og endurnýtanleg efni í eigin myndsköpun og hönnun.
  • útskýrt eigin hugmyndir og val á efnum, litum og aðferðum.
  • skoðað og rætt eigin verk og annarra á uppbyggilegan hátt.
  • unnið með öðrum og deilt hugmyndum og aðferðum.
  • sýnt þrautseigju við skapandi verkefni og gert sér grein fyrir að tilraunir og mistök geta verið hluti af sköpunarferlinu.

Námsmat:

Námsmat í áfanganum er fyrst og fremst leiðbeinandi og byggist á vinnuferli nemenda, þátttöku og sköpun. Áhersla er lögð á að nemendur prófi sig áfram, sýni frumkvæði og þrói eigin hugmyndir.


05 Límmiðar og fatavinyll

Tímafjöldi: 1x2 kennslustundir í viku í 7 vikur
Kennari: Hildur Þorkelsdóttir
Hámarksfjöldi: 14 nemendur

Nemendur kynnast eiginleikum vinyls sem við notum til að setja texta/myndir á efni.  Lærum hvernig við getum notað vinyl til að búa til límmiða til skrauts sem og til að merkja hluti.

Val verður um verkefni t.d. púðar, litlar töskur eða pokar.  Allir þurfa að gera eitt verkefni þar sem notaður er strauvinyll og eitt verkefni það sem notaður er límmiðavinyll.

Nemendur geta komið með fatnað að heiman og sett strauvinyl á fatnaðinn til skrauts.

Hæfniviðmið:

  • Þekkir eiginleika vinyls í textíl og hvaða möguleika það gefur.
  • Getur unnið með hugmynd frá skissu að fullgerðum hlut.

Námsmat:

Hvernig verður námsmatið?

Leiðsagnarmat og símat þar sem hæfniviðmið eru metin ásamt vinnusemi, frumkvæði, umgengni og vandvirkni.


06 Íþróttaval

Tímafjöldi: 1x2 kennslustundir í viku í 7 vikur
Kennari: Heiðar Pétur Halldórsson
Hámarksfjöldi: 16 nemendur

Í áfanganum fá nemendur tækifæri til að kynnast fjölbreyttum íþróttum og hreyfingu. Við munum nýta fjölnotasal skólans og einnig aðstöðu og svæði í nærumhverfi skólans ef það hentar. Farið verður í ólíkar íþróttir og leiki þar sem áhersla verður á hreyfingu, samvinnu og að prófa eitthvað nýtt. Áhersla verður lögð á fjölbreytni og að nemendur taki virkan þátt í tímunum. 

Hæfniviðmið:

  • Tekið þátt í fjölbreyttum íþróttum og hreyfingu og beitt grunnfærni við ólíkar aðstæður.
  • Unnið með öðrum, farið eftir reglum og sýnt sanngirni og tillitssemi.
  • Metið eigin þátttöku og framfarir og áttað sig á mikilvægi hreyfingar fyrir heilsu og vellíðan.

Námsmat

Mæting og virkni


07 Komdu að leika

Tímafjöldi: 1x2 kennslustundir í viku í 7 vikur
Kennari: Guðný Lára Gunnarsdóttir
Hámarksfjöldi: 14 nemendur

Í smiðjunni vinnum við með leiklist á skapandi, skemmtilegan og fjölbreyttan hátt. Áhersla verður á leiklistarleiki, spuna, líkamstjáningu, rödd, persónusköpun og samvinnu.

Nemendur fá að prófa sig áfram í ýmsum leikrænum æfingum þar sem þeir nota ímyndunaraflið, skapa persónur og aðstæður og læra að byggja áfram á hugmyndum annarra. Unnið verður bæði í pörum og litlum hópum og notast við einfaldar kveikjur, sögur, orð, myndir og aðstæður.

Áherslan er fyrst og fremst á leikgleði, sköpunargleði, samvinnu og að öðlast meira öryggi í að tjá sig með líkama, rödd og leik.

Í lok smiðjunnar vinna nemendur stutt leikræn verkefni eða spuna þar sem þeir nýta það sem þeir hafa lært.

Hæfniviðmið:

  • Geti nýtt sér hugmyndir jafningja og lagt fram sínar eigin í leikrænu ferli.
  • Geti skapað einfalda leikpersónu og tjáð hana með rödd, hreyfingu og svipbrigðum.
  • Geti unnið með öðrum að einföldum leiklistarverkefnum og tekið þátt í stuttum spuna.

Námsmat:

Leiðsagnarmat og símat þar sem hæfniviðmið eru metin ásamt virkni og þátttöku nemenda.


Ef þið hafið einhverjar athugasemdir eða spurningar þá vinsamlegast sendið línu á leifur@stekkjaskoli.is