Tímabil 5: 6. apríl - 5. júní

 Val A

Er kennt á mánudögum og fimmtudögum kl. 12:30-13:50


01 Heimilisfræði

Tímafjöldi: 2x2 kennslustundir í viku í 9 vikur
Kennari: Hilmar Guðlaugsson
Hámarksfjöldi: 12 nemendur

Heimilisfræði er ekki valgrein. Allir fara í heimilisfræði a.m.k. einu sinni í vetur.

Í þessu valfagi er lögð áhersla á eldamennsku og bakstur í bland.

Farið verður yfir meðhöndlun hráefnis og matvæla, umgengni og þrif á helstu áhöldum í eldhúsinu auk almenns frágangs. Auk þess verur farið yfir tengsl næringar og heilsu ásamt ýmsum þáttum tengdum heimilishaldi.

Í vetur munu nemendur nota vefinn til að finna uppskriftir. Velja sér eitthvað til að elda eða baka og taka sig svo upp. Hluti af námsmatinu í heimilisfræði er myndbandið sem nemendur skila af sér.

Hæfniviðmið

  • Kynnist helsta handbragði í matreiðslu og bakstri.
  • Matreitt einfalda rétti eftir uppskrift og unnið sjálfstætt.
  • Farið eftir leiðbeiningum um hreinlæti og þrif tengdu heimilishaldi.
  • Gert sér grein fyrir helstu kostnaðarliðum við heimilishald og sé meðvitaður um neytendavernd.

Námsmat

Símat og leiðsagnarmat þar sem hæfniviðmið eru metin ásamt vinnusemi, frumkvæði, vandvirkni, umgengni og ábyrgð eru metin.

 


02 Tæknifikt

Tímafjöldi: 2x2 kennslustundir í viku í 9 vikur
Kennari: Leifur Viðarsson
Hámarksfjöldi: 12 nemendur

Við ætlum að kafa í ýmslegt tengt tækni og tölvum. Skoðum einhver forrit, einhverja leiki og prófum jafnvel að taka tæki í sundur og skoða.

Við munum einnig skoða Lego róbóta og prófa setja þá saman og forrita.

Hæfniviðmið

  • Nýtt hugbúnað og tæki á fjölbreyttan hátt og til að leysa fjölbreyttar þrautir. Hafa fengið kynningu á grunnhugtökum í forritun.
  • Nýtt mismunandi tegundir tölva, snjall-tækja og jaðartækja til menntunar.
  • Líkamlegar æfingar, snerpa og vöðvaminni.

Námsmat

Símat og leiðsagnarmat þar sem hæfniviðmið eru metin. Einnig er horft til vinnusemi, frumkvæðis, vandvirkni, umgengni og ábyrgðar.


03 Stórval

Tímafjöldi: 2x2 kennslustundir í viku í 9 vikur
Kennari: Áslaug Tóka Gunnlaugsdóttir
Hámarksfjöldi: 12 nemendur

Stefán Vilhjálmur Jónsson frá Möðrudal eða Stórval (24. júní 1908 - 30. júlí 1994) var íslenskur myndlistarmaður, þekktastur fyrir sérstakan naívískan stíl (barnalegan stíl). Í þessu vali ætlum við að vinna verk í anda Stórvals, allt frá málverkum, í pappamassaskúlptúra eða leir.

Hæfniviðmið

Að loknu vali er stefnt að því að nemandi geti:

  • ...þekki navísk verk
  • ...unnið þolinmótt og markvisst að langtímaverkefni
  • ...borið saman eigin verk og fyrirmynd með gagnrýnum hætti
  • ...sýnt virðingu fyrir verkum og vinnubrögðum myndlistarmeistara

Námsmat

Símat og leiðsagnarmat þar sem hæfniviðmið eru metin. Einnig er horft til vinnusemi, frumkvæðis, vandvirkni, umgengni og ábyrgðar.


04 Prjón og hekl

Tímafjöldi: 2x2 kennslustundir í viku í 9 vikur
Kennari: Hildur Þorkelsdóttir
Hámarksfjöldi: 12 nemendur

Nemendur kynnast grunnaðferðum í vélsaum og sauma náttbuxur úr flónel. Lögð er áhersla á að nemendur læri að sníða eftir sniði og gera buxur frá grunni.

Hæfniviðmið:

  • Að nemendur geti lagt saman efnisbrúnir og títiprjónað.
  • Að nemendur geti saumað með fót við brún.
  • Að nemendur geti unnið eftir ferli og leyft sköpunargleðinni að ráða
  • Að nemendur kunni að sauma zikk zakk

Námsmat

Símat og leiðsagnarmat þar sem hæfniviðmið eru metin. Einnig er horft til vinnusemi, frumkvæðis, vandvirkni, umgengni og ábyrgðar.


05 Sköpun og hönnun

Tímafjöldi: 2x2 kennslustundir í viku í 9 vikur
Kennari: Þuríður Ingvarsdóttir
Hámarksfjöldi: 12 nemendur

Nemendur hanna eigin verkefni innan ákveðinna marka.  Í boði verður t.d. að hanna og smíða eigið spil, leikfang, einfaldan stól, hillu og fleira.

Hæfniviðmið:

Að nemendur geti:

  • Skissað eigin hugmyndir.
  • Sett upp málsetta vinnuteikningu
  • Valið efni við hæfi
  • Fundið leiðir og unnið verkefni frá hugmynd að fullbúnum hlut.

Námsmat

Leiðsagnarmat og símat.


06 Útivist

Tímafjöldi: 2x2 kennslustundir í viku í 9 vikur
Kennari: Viktorija Riskute og Eyþór Stefánsson
Hámarksfjöldi: 18 nemendur

Í þessari valgrein fá nemendur tækifæri til að hreyfa sig úti í náttúrunni og kynnast fjölbreyttum leiðum til útivistar. Áhersla er lögð á útihlaup, göngur, þrekæfingar og leiki utandyra sem efla þol, styrk og samvinnu.

Nemendur læra að hlaupa á mismunandi undirlagi, kynnast einföldum æfingaraðferðum til að bæta þol og styrk og fá fræðslu um upphitun, teygjur og mikilvægi hreyfingar fyrir heilsu. Einnig verður farið í styttri útivistarferðir og hjólaferðir þar sem nemendur læra að njóta náttúrunnar og bera virðingu fyrir umhverfinu. Mikilvægt að þá daga sem valið er að nemendur mæti í skólan með föt til útivistar. Það verður látið vita með fyrirvara ef þau þurfa að mæta á hjóli. 

Markmiðið er að efla hreyfigleði, þol og sjálfstraust nemenda ásamt því að hvetja þau til virkrar og heilbrigðrar útivistar.

Hæfniviðmið:

  • Nemandi getur tekið þátt í fjölbreyttri hreyfingu utandyra, svo sem útihlaupum, göngum og þrekæfingum. 
  • Nemandi sýnir vilja til að bæta þol og líkamlega getu. 
  • Nemandi getur hlaupið og hreyft sig á mismunandi undirlagi. 
  • Nemandi getur sýnt ábyrgð gagnvart náttúru um umhverfi þegar stunduð er útivist. 

Námsmat

Þátttaka og virkni nemenda.



Val B

Er kennt á miðvikudögum kl. 08:10-09:30


01 Heimilisfræði

Tímafjöldi: 1x2 kennslustundir í viku í 9 vikur
Kennari: Elín Ása Magnúsdóttir
Hámarksfjöldi: 12 nemendur

Í þessu valfagi er lögð áhersla á eldamennsku og bakstur í bland.

Farið verður yfir meðhöndlun hráefnis og matvæla, umgengni og þrif á helstu áhöldum í eldhúsinu auk almenns frágangs. Auk þess verur farið yfir tengsl næringar og heilsu ásamt ýmsum þáttum tengdum heimilishaldi.

Í vetur munu nemendur nota vefinn til að finna uppskriftir. Velja sér eitthvað til að elda eða baka og taka sig svo upp. Hluti af námsmatinu í heimilisfræði er myndbandið sem nemendur skila af sér.

Hæfniviðmið

  • Kynnist helsta handbragði í matreiðslu og bakstri.
  • Matreitt einfalda rétti eftir uppskrift og unnið sjálfstætt.
  • Farið eftir leiðbeiningum um hreinlæti og þrif tengdu heimilishaldi.
  • Gert sér grein fyrir helstu kostnaðarliðum við heimilishald og sé meðvitaður um neytendavernd.

Námsmat

Símat og leiðsagnarmat þar sem hæfniviðmið eru metin ásamt vinnusemi, frumkvæði, vandvirkni, umgengni og ábyrgð eru metin.


02 Golf

Tímafjöldi: 1x2 kennslustundir í viku í 9 vikur
Kennari: Leifur Viðarsson
Hámarksfjöldi: 12 nemendur

Í þessari valgrein förum við upp á golfvöll með rútu og lærum grunnatriðin í að spila golf. Farið verður bæði yfir golfsveifluna og háttsemis- og siðareglur sem nauðsynlegar er að kunna og fara eftir í golfi.

Fyrri hluta tímabilsins verðum við í inniaðstöðu Golfklúbbs Selfoss við Svarfhól. Seinni hluti tímabilsins verður síðan utandyra í æfingaraðstöðu Golfklúbbs Selfoss þar sem bæði er hægt að slá af mottum, pútta á stórri æfingarflöt og æfa stutta spilið.

Ekki er skylda að hafa prófað að spila golf áður en það er þó líka í lagi fyrir krakka sem hafa spilað golf að skrá sig og vera með. Það verða æfingar í boði fyrir alla.

Hæfniviðmið:

  • Þjálfa liðleikaæfingar sem reyna á hreyfivídd og hreyfigetu.
  • Þjálfa útfærslu flókinna hreyfinga þannig að þær renni vel saman.
  • Taka þátt í einstaklingsíþróttum og heilsurækt.
  • Fara eftir leikreglum og sýnt háttvísi í leik og hvatt til jákvæðrar framkomu við samherja og mótherja.

Námsmat

Símat og leiðsagnarmat ásamt þátttöku í tímum.


03 Leiklist fyrir alla – sköpun og gleði

Tímafjöldi: 1x2 kennslustundir í viku í 16 vikur
Kennari: Guðný Lára Gunnarsdóttir
Hámarksfjöldi: 12 nemendur

Þið sem eruð í þessu vali núna í 4. valstokki haldið áfram í því.

Leiklistarval  – 16 vikur af leikgleði og sköpun! 

Langar þig að kynnast leikhúsheiminum á skemmtilegan, lifandi og skapandi hátt? Í þessu vali förum við í ævintýri þar sem þú lærir að tjá þig, byggja upp persónur og segja sögu með leiklist. 

Í hverjum tíma verður farið í spennandi leiklistaræfingar, spunavinnu, og skemmtilega hópvinnu þar sem við láta hugmyndirnar fljúga! Þú færð tækifæri til að búa til þitt eigið leikrit með vinum þínum, prófa að lesa handrit og skoða hvernig þú getur skapað persónur sem lifna við fyrir framan áhorfendur. 

Á meðan við æfum okkur í framkomu, tjáningu og samvinnu, byggjum við upp sterka og jákvæða stemningu þar sem allir fá að njóta sín og finna leikgleðina. 

Og að lokum? Ef vel gengur búum við til okkar eigin leiklistarhátíð þar sem allir sýna það sem þeir hafa skapað og lært –þetta gæti orðið ógleymanleg! 

Komdu með þinn kraft, hugmyndir og orku – við ætlum að skapa, hlæja og standa saman! 

Hæfniviðmið 

  • Geti nýtt sér hugmyndir jafningja og lagt fram sínar eigin í leikrænu ferli og við undir- búning og sköpun leikþáttar. 
  • Geti nýtt sér efni úr ýmsum áttum sem kveikju við frumsköpun leikins efnis. Skapað leikþætti í félagi við aðra með skýrum persónum, söguþræði og framvindu. 
  • Geti nýtt sér leikmuni, búninga, einfaldan sviðsbúnað og tækni til þess að styrkja sköpun sína. 
  • Geti flutt leiktexta í hlutverki á viðeigandi hátt fyrir framan áhorfendur.

Námsmat

Símat þar sem litið verður til þátttöku og virkni nemenda. 


04 Í form eftir dorm

Tímafjöldi: 1x2 kennslustundir í viku í 9 vikur
Kennari: Áslaug Tóka Gunnlaugsdóttir
Hámarksfjöldi: 12 nemendur

Áhersla á mikla hreyfingu.  Hér er NAUÐSYNLEGT að hafa ÁHUGA og VILJA að hreyfa sig. Tímarnir eru byggðir upp eins og tímar sem ég var með á fyrsta valtímabili nema að nú stefnum við á að fara í eina fjallgöngu í lokin.

Hér fá nemendur tækifæri á því að nota hreyfi færnina sína.  Í öllum tímum verður byrjað á léttum upphitunaræfingum, farið út að hlaupa (Misstóra hringi í hvaða veðri sem er) og endað í teygjuæfingum og slökun og kennt að nota öndun rétt. Nauðsynlegt að mæta í þægilegum fötum til að hlaupa í, í góðum hlaupaskóm og klæða sig eftir veðri.  Gott að hafa auka föt með.

Hæfniviðmið   

  • Að nemendur geti gert æfingar sem reyna á þol, styrk og stöðugleika útlima og bols.
  • Að nemendur geti gert hreyfingar sem reyna á stöðujafnvægi og hreyfijafnvægi
  • Að nemendur geti gert flóknar samsettar æfingar sem reyna á lipurð og samhæfingu

Námsmat

Virkni og þátttaka í tímum.


05 Útikennsla

Tímafjöldi: 1x2 kennslustundir í viku í 9 vikur
Kennari: Hildur Þorkelsdóttir
Hámarksfjöldi: 12 nemendur

Nemendur fara út, kveikja upp í eldstæðinu þar sem bakaðar verða lummur, hitað kakó, poppað popp og ýmislegt fleira

Ef ekki er veður til að kveikja upp verður farið í göngutúra og svæði í nágrenni skólans skoðuð.

Viðmið:

  • Að nemendur sýni ábyrga og örugga umgengni við vinnu og frágang á vinnusvæði
  • Að nemendur geti tekið tillit til annarra í hópavinnu og sýnt frumkvæði
  • Að nemendur geti unnið á skipulagðan hátt.

Námsmat

Leiðsagnarmat og símat.


06 Inkscape

Tímafjöldi: 1x2 kennslustundir í viku í 9 vikur
Kennari: Þuríður Ingvarsdóttir
Hámarksfjöldi: 12 nemendur

Nemendur læra grunnatriði í teikniforritinu Inkscape og hanna/teikna sinn eigin hlut til framleiðslu vinylskera. Búum til límiða og merkingar á textíl/fatnað. Áhersla lögð á eigin teikningu og hönnun.

Hæfniviðmið:

  • Að nemendur læri grunnatriði í tölvuteikningu
  • Að nemendur vinni með texta og eigin teikningar í forritinu
  • Að nemendur vinni hugmynd frá skissu að tilbúnum hlut
  • Að nemendur læri að vista skjöl rétt og flytja yfir í önnur tæki.

Námsmat

Leiðsagnarmat og símat.


Valseðillinn

Ef þið hafið einhverjar athugasemdir eða spurningar þá vinsamlegast sendið línu á leifur@stekkjaskoli.is