Félagsmiðstöðin Zelsíuz
Heiðarstekkur 10 | 800 Selfoss
480 1661
Verkefnastjóri Zelsíuz í Stekkjaskóla: Hrafnhildur ,,Raven" Sigurjónsdóttir
Netfang: hrafnhildurss@arborg.is
Félagsmiðstöðin Zelsíuz þjónustar börn og ungmenni á aldrinum 10–16 ára í Sveitarfélaginu Árborg. Haustið 2026 opnaði fyrsta útibú Zelsíuz í Stekkaskóla, en stefnan er sú að opna útibú í öllum grunnskólum sveitarfélagsins á komandi árum.
Útibúið er hluti af þróunarverkefni sveitarfélagsins sem miðar að því að færa frístundaþjónustu nær börnum og ungmennum í þeirra nærumhverfi, auka aðgengi að félagsmiðstöðvastarfi og efla tengsl milli skóla og frístundastarfs.
Í Zelsíuz leggjum við áherslu á að skapa öruggt, skemmtilegt og uppbyggilegt umhverfi þar sem öll eru velkomin. Starfið byggir á áhugasviði ungmennanna sjálfra og er lögð rík áhersla á félagsfærni, vináttu, sköpun, lýðræði og virka þátttöku.
Zelsíuz og Stekkjaskóli vinna saman að því að efla félagslega vellíðan, jákvæðan skólabrag og virka þátttöku nemenda.
Verkefnastjóri Zelsíuz hefur fasta starfsstöð innan skólans og er með reglulega viðveru á skólatíma. Nemendur geta sótt í aðstöðu félagsmiðstöðvarinnar á auglýstum opnunartímum, hitt starfsfólk og átt notalega stund með jafnöldrum sínum.
Opnunartími Zelsíuz í Stekkjaskóla
Unglingastig
Opnanir á skólatíma:
● Frímínútur: Mánudaga, þriðjudaga, fimmtudaga og föstudaga kl. 10:10–10:30.
● Hádegisopnanir: Mánudaga til föstudaga kl. 12:30–13:00.
*Athugið: Lokað er í félagsmiðstöðinni á daginn ef skólastarf er ekki.
Kvöldopnanir:
● Þriðjudagar: 19:30–22:00.
● Fimmtudagar: 19:30–22:00.
Miðstig – 5.–7. bekkur
● Þriðjudagar: 17:00–18:30 (5.–7. bekkur).
● Miðvikudagar: 14:00–15:30 (5.–7. bekkur).
● Fimmtudagar: 17:00–18:30 (eingöngu 7. bekkur).
Nánari upplýsingar um félagsmiðstöðina Zelsíuz og miðlæga opnunartíma má finna
á vefsíðu frístundamiðstöðvar Árborgar.